Samskipti
Upplýsingamiðlun, markaðsstarf, viðburðir og kynningar
Í verkahring
samskiptasviðs Háskólans í Reykjavík eru markaðsmál og ásýnd skólans, innri og
ytri samskipti, margvísleg útgáfa, viðburðir, samfélagsmiðlar og vefmál,
almannatengsl og þjónusta við fjölmiðla. Samskiptasviðið miðlar upplýsingum um
starfsemi HR til starfsfólks, nemenda og almennings með sérstaka áherslu á
vísindamiðlun, rannsóknir, nýsköpun og námsframboð.
Samskiptasvið stýrir fjölbreyttu kynningar- og fræðslustarfi fyrir grunn- og framhaldsskólanema, atvinnulíf og samfélag í samstarfi við deildir háskólans. Í því samhengi má nefna viðburði á borð við Háskóladaginn, Framadaga, Stelpur & tækni, UT-messuna og Vísindavöku.
Forstöðumaður samskiptasviðs Háskólans í Reykjavík er Stefán Hrafn Hagalin ( hagalin@ru.is ).
Almennar fyrirspurnir má senda á netfangið:
samskipti@ru.is