Nemendaráðgjöf HR
Markmið okkar er að styðja við nemendur sem stunda nám við skólann. Þjónustunni sinna náms- og starfsráðgjafar og sálfræðingar.
Þú getur meðal annars talað við okkur um:
- náms- og starfsval
- styrkleika
- áhugasvið
- markmiðasetningu og tímastjórnun
- námserfiðleika
- sérúrræði í námi
- jafnvægi hlutverka
- líðan
- persónuleg málefni
Bóka hjá náms- og starfsráðgjafa
Hægt er að bóka beint í gegnum Karaconnect bókunarkerfið okkar:
- Finndu tíma með því að smella hér .
Námsráðgjöf
Við leggjum áherslu á að:
- efla færni og metnað nemenda varðandi nám og störf.
- styrkja nemendur sem námsmenn og sérfræðinga þannig að þeir nái hámarksárangri.
- auka sjálfsöryggi og sjálfsþekkingu nemenda.