Tilkynningagátt - ósæmileg hegðun
Hverskonar einelti, kynbundin eða kynferðisleg áreitni er ekki liðin við Háskólann í Reykjavík (sjá siðareglur HR ) og við slíkum tilfellum er brugðist samkvæmt viðbragðsáætlun þar sem m.a. er tilgreint að nemendur sem telja sig hafa orðið fyrir eða orðið vitni að ósæmilegri hegðun á borð við einelti, kynbundna eða kynferðislega áreitni geti tilkynnt það til deildaforseta, forstöðumanns eða rektors.
Nemendur sem telja sig hafa orðið fyrir eða orðið vitni að ósæmilegri hegðun geta einnig fyllt út eftirfarandi eyðublað til að koma tilkynningu/ábendingu á framfæri. Tilkynningin berst til allra meðlima siðanefndar HR. Siðanefndin tekur mál til skoðunar eða beinir í réttan farveg. Allar tilkynningar sem berast í gegnum gáttina eru skráðar og skjalfestar í skjalavistunarkerfi HR. Starfsmönnum HR er einnig bent á viðbragðsáætlun sem ætluð er starfsmönnum HR á Orion innri-vef.