Árnason Faktor leitar að laganema í sumarstarf
Starfið felur í sér aðstoð við sérfræðinga og aðra starfsmenn stofunnar, auk almennra skrifstofustarfa. Að hluta til er um að ræða aðstoð í móttöku.
Árnason Faktor ehf. sérhæfir sig á sviði hugverkaréttar, öflun og skráningu slíkra réttinda um allan heim. Hjá fyrirtækinu starfa alls 19 manns. Nánari upplýsingar um fyrirtækið er að finna á heimasíðunni arnasonfaktor.is.
Laganeminn fengi innsýn í umfangsmikla meðferð og umsýslu mála er snúa að hugverkaréttindum, svo sem einkaleyfum, vörumerkjum og hönnunum og öðrum skyldum sviðum.
Hæfniskröfur:
- Þekking og reynsla á sviði hugverkaréttar er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og jákvæðni
- Þjónustulund
- Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í rituðu máli
- Mjög góð þekking og vald á ensku
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Grunnþekking á sviði upplýsingatækni
Upplýsingar um starfið veitir Gunnar Örn Harðarson, framkvæmdastjóri Árnason Faktor, goh@arnasonfaktor.is.
Umsóknir skulu berast á netfangið mail@arnasonfaktor.is ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2023.
